Hvaðan kemur Kriya jóga?

Kriya jóga er upprunnið úr indverskri heimspeki jóga, svokölluðum Vedabókum. Um miðja 19. öld kenndi Babaji Maharaj, lærisveini sínum Lahiri Mahasaya, þessi fornu fræði.  Lærisveinn Lahiri Mahasaya var kennari Swami Sri Yukterswar. Sri Yukterswar var meistari Swami Hariharananda. Þannig hafa þessi fræði gengið mann fram af manni til dagsins í dag. Allir hafa þeir náð Nirvikalpa Samadhi, það er hugleiðsluástand  þar sem þeir hafa fulla stjórn á púls  og hjartslætti líkamans. Nirvikalpa Samadhi er hið æðsta hugleiðsluástand allra jógaiðkunar. Kriya jóga er ekki hægt að iðka án persónulegrar handleiðslu frá Kriya jóga meistara.
masterlogo