Babaji Maharaj, hinn mikli avatar.Avatar
þýðir að um
mikla andlega veru sé að ræða, sem er með getu umfram
takmarkanir
mannslíkamans.
Babaji leiðbeinir úr
fjarlægð og er sjaldan sjáanlegur. Sögur
segja að oft hafi sést til Babaji
í
Himalaya og að hann sé mörg hundruð ára gamall.
|
![]() |
Lahiri Mahasaya (1826-1895)Árið
1861 var
Lahiri Mahasaya staddur
í
Himalaya og
og fékk
vígslu leiðsögn í Kriya
jóga frá
Babaji. Sagan segir að einn dag hafi
vinnuveitandi Lahiri Mahasaya ákveðið
að senda hann
til lítils þorps
við rætur
Himalaya. Þar hitti hann Babaji meistara sinn
sem
sagði honum að vígja alla
þá sem
í einlægni óskuðu eftir
að
læra
Kriya Yoga. Hann vígði og leiðbeindi
þúsundum iðkenda, og af þeirri
ástæðu er
hann kallaður faðir Kriya Yoga.
|
![]() |
Swami Sri Yukteswar (1855-1936)Sri
Yukteswar fékk leiðsögn hjá
Lahiri
Mahasaya og stofnaði síðar hið
þekkta
Karar Ashram, sem staðsett
er í
Puri á Indlandi. Sri Yukteswar var mjög virtur
jógi
sem leiðbeindi og
vígði
marga iðkendur Kriya yoga.
|
![]() |
Paramahansa Yogananda (1893-1952)Yogananda
var lærisveinn Sri Yukterswar. Hann er mjög
þekktur
sem höfundur
bókarinnar “Sjálfsævisaga
jóga”
(Autobiography of a yogi) hann kom til Vesturlanda
árið
1920, fyrstur
Kriya jóga meistara.
|
![]() |
Paramahamsa Hariharananda (1907-2002)Hariharananda
náði fullri
guðsvitund og
var mjög virtur nemandi Sri Yukteswar og Paramahansa
Yogananda.
Hann
bjó og rak
Kriya jóga miðstöð
nálægt Miami
í Florida. Hann var lærimeistari
Paramahamsa
Prajnanananda og Rajarshi Peter van Breukelen.
|
![]() |
Paramahamsa Prajnanananda (f. 1960)Prajnanananda
var
vígður til munks af meistara sínum
Paramahamsa
Hariharanananda
og fékk nafnbótina “Swami Prajnanananda
Giri”. Síðar fékk hann titilinn
Paramahamsa sem er æðsti titill sem munkur getur
hlotnast.
Hann ferðast
út um
allan heim til að kenna og veita vígslu í
Kriya
jóga. Eftir andlát
Paramahamsa
Hariharananda tók hann við stjórn Kriya
jóga
miðstöðvarinnar í Miami.
Hann er
einlægur leitandi sannleikans og kennsla hans
snýst
aðeins um eitt
“kærleika”.
Hann hefur gefið út margar bækur.
|
![]() |
Rajarshi van Breukelen (f. 1946)Peter
van Breukelen er
einn af elstu nemendum Paramahamsa
Hariharananda.
Síðan 1984 hefur hann ferðast um
Evrópu og breitt
út boðskap
lærimeistara síns.
Peter hefur sett á stofn Kriya jóga
miðstöð
í Sterksel nálægt Eindhoven
í
Hollandi, þar sem hann býr með
fjölskyldu sinni.
Reglulega eru haldin
þar
námskeið í Kriya jóga
fræðum
á ensku, hollensku og þýsku.
Tveir lærisveinar Hariharananda komu til Íslands vorið 1996, Þeir Paramahamsa Prajnanananda og Peter van Breukelen Síðan þá hefur Kriya Yoga verið stundað hér á landi. |
![]() |
|
Swami Mangalananda Giri Mangalananda tók vígslu frá Peter van Breukelen og hitti Hariharananda í fyrsta skipti vorið 1994. Frá þeim tíma dvaldist hún með Hariharananda og ferðaðist með honum um Evrópu. Árið 2000 var hún vígð Swami inn í Giri-munkaregluna. Mangalananda þýðir “bliss of auspiciousness.” Hún er fyrsta konan til að vígjast inn í munkareglu Paramahamsa Hariharananda. Hún kennir Kriya yoga víðs vegar um heiminn. |
![]() |
